Hluta af varningnum skilað til hinna grunuðu

 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varð að skila hluta af þeim varningi sem lagt var hald á vegna rannsóknar á umfangsmiklum þjófnaði í verslunum á höfuðborgarsvæðinu í fyrra aftur til þeirra sem grunaðir voru um að hafa stolið honum úr búðunum.

Ástæðan er sú að ekki tókst að sýna fram á með óyggjandi hætti að um þýfi væri að ræða.

Í þessu tiltekna máli voru alls 14 Litháar handteknir í tengslum við rannsókn málsins og lagt hald á mikið magn af dýrum fatnaði, íhlutum í tölvur og ógrynni af rakvélablöðum. Sex voru síðan ákærðir en af þeim voru fjórir dæmdir í tveggja til tíu mánaða fangelsi. Öllum skaðabótakröfum í málinu var vísað frá dómi.

Að sögn Ómars Smára Ármannssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns, kemur það endrum og eins fyrir að lögregla neyðist til að skila munum, sem hún telur að sterkar líkur á að séu þýfi, til þeirra sem grunaðir eru um þjófnaðinn.

Hvenær er úlpa stolin?

Ómar Smári nefnir sem dæmi að þótt lögregla leggi hald á úlpu sem talið sé afar líklegt að hafi verið stolið úr tiltekinni verslun geti verið erfitt að sanna það. Ef enginn merkimiði er á úlpunni nægir t.a.m. ekki fyrir verslunareigandann að benda á að samskonar úlpu hafi verið stolið úr búðinni, sanna verði að þessari tilteknu úlpu hafi verið stolið. Kerfin sem verslanirnar búi yfir bjóði ekki upp á þann möguleika.

Ómar Smári bendir á að í frumvarpi sem dómsmálaráðherra lagði fram í fyrra til breytinga á almennum hegningarlögum fái lögregla víðtækari heimild til að krefjast þess að varningur sé gerður upptækur.

Í frumvarpinu er m.a. lagt til að unnt verði að gera upptæk verðmæti án þess að sýnt sé fram á að þau megi rekja til tiltekins refsiverðs brots hafi viðkomandi gerst sekur um brot sem er til þess fallið að hafa í för með sér verulegan ávinning og geti brotið varðað að minnsta kosti sex ára fangelsi. Að þessum skilyrðum uppfylltum má gera upptæk verðmæti sem tilheyra viðkomandi, nema hann sýni fram á að þeirra hafi verið aflað með lögmætum hætti. „Ef þetta kemst í gegn, þá er það bara hið besta mál,“ segir Ómar Smári.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert