Leit að flugmanni hætt

Á myndinni sést eins hreyfils, Piper Cherokee, flugvélin fyrir miðju, …
Á myndinni sést eins hreyfils, Piper Cherokee, flugvélin fyrir miðju, en ekkert hefur sést til hennar.

Skipulagðri leit að flugmanni Piper Cherokee flugvélar, sem leitað hefur verið frá því á fimmudag, hefur verið hætt. Vonskuveður er enn á svæðinu,  vindur um 35 metrar á sekúndu, um 10 metra ölduhæð og éljagangur, að því er segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.


Leitað hefur verið verið á öllu því svæði sem gera má ráð fyrir að björgunarbátur flugvélarinnar fyndist, miðað við veðurfarslegar aðstæður og sjólag. Leitarsvæðið var afmarkað eftir útreikningum sértæks leitarforrits sem tekur mið af áætluðum lendingarstað vélarinnar á sjónum og mögulegu reki.

Eftirgrennslan heldur áfram og hefur þeim tilmælum verið beint til skipa og báta sem leið eiga um svæðið að þau litist gaumgæfilega um eftir hverju því sem bent gæti til afdrifa flugvélarinnar og flugmannsins. Auk þess munu skip og loftför Landhelgisgæslunnar svipast um á svæðinu í hefðbundnum eftirlitsferðum sínum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert