Handtekinn eftir ránstilraun í Firðinum

Lögreglan hefur handtekið karlmann sem gerði tilraun til að ræna útibú Kaupþings í verslunarmiðstöðinni Firðinum í Hafnarfirði um kl. 11:30. Að sögn lögreglu sakaði engan, en maðurinn var óvopnaður. Hann var handtekinn fyrir utan bankann.

Að sögn lögreglu var maðurinn einn að verki. 

Lögreglan er enn á staðnum og stendur rannsókn málsins yfir. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert