Tvær bílveltur með skömmu millibili

Tvær bílveltur urðu með fimm mínútna millibili í umdæmi Selfosslögreglunnar á níunda tímanum í kvöld. Ekki urðu slys á fólki. Í öðru tilvikinu valt bíll við Litlu kaffistofuna, og í hinu valt bíll á Gnúpverjavegi. Síðdegis varð árekstur skammt austan við Selfoss, en þar urðu ekki heldur meiðsl.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert