Enn jarðskjálftar við Upptyppinga

Fjöldi jarðskjálfta hefur orðið um helgina í nágrenni við Upptyppinga norður af Vatnajökli en skjálftavirkni þar jókst á ný í síðustu viku. Skjálftarnir eru flestir um og yfir 1,5 stig á Richter. Þá varð einnig jarðskjálfti, sem mældist 3,5 stig á Richter í Goðabungu á Mýrdalsjökli samkvæmt sjálfvirkum skjálftalista á vef Veðurstofunnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert