Utanríkisráðherra lýsti yfir áhyggjum vegna Tíbet

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. mbl.is/Frikki

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra ræddi í dag við sendiherra Kína á Íslandi, Zhang Keyuan, þar sem hún lýsti þungum áhyggjum vegna  ástandsins í Tíbet. 

Nefndi  hún  sérstaklega  fregnir  af  tugum dauðsfalla í tengslum  við  mótmæli síðustu daga og áframhaldandi spennu milli  íbúa  Tíbets og kínverskra stjórnvalda, samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu.

Þá hvatti Ingibjörg til þess að kínversk stjórnvöld beittu ekki valdi og að þau legðu sig fram um að finna varanlega lausn á stöðu Tíbet og að mannréttindi yrðu virt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert