Hús við Hverfisgötu gerð mannheld

Slökkviliðið hefur oft þurft að sinna útköllum vegna elds í …
Slökkviliðið hefur oft þurft að sinna útköllum vegna elds í auðu húsi við Hverfisgötu. mbl.is/Júlíus

Eigendur húsanna við Hverfisgötu 32 til 34 hafa samþykkt að gera húsin mannheld og taka til í kringum þau en þau eru í niðurníðslu. Þetta kom fram á fundi þeirra með slökkviliðsstjóra í morgun.

Eldur hefur ítrekað kviknað í öðru húsinu, síðast í gærmorgun og var þá sofandi útigangsmanni úr risi hússins.

Haft var eftir Jóni Viðari Matthíassyni, slökkviliðsstjóra, að eigendur húsanna hafi verið sammála um að láta loka húsunum hið fyrsta. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert