Lífeyrir almannatrygginga hækkar
Í tengslum við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar vegna kjarasamninga Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins hefur fjármálaráðuneytið reiknað út að meðaltalshækkun lægstu launa þann 1. febrúar samkvæmt nýgerðum kjarasamningi sé um það bil 7% frá 2007.
Í samræmi við það hefur félags- og tryggingamálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, undirritað reglugerð sem kveður á um hækkun lífeyris almannatrygginga hjá öryrkjum og ellilífeyrisþegum um 4% frá og með 1. febrúar síðastliðnum. Hækkunin tekur til allra lífeyrisflokka almannatrygginga og kemur til viðbótar þeirri 3,3% hækkun sem kom til framkvæmda 1. janúar síðastliðinn.
Frá áramótum hefur lífeyrir almannatrygginga því hækkað um 7,4% eða sem nemur um það bil 9400 krónum á mánuði miðað við óskertar bætur.
Félags- og tryggingamálaráðherra hefur einnig í samráði við forsætisráðherra ákveðið að fela nefnd sem vinnur nú að endurskoðun almannatrygginga að móta tillögur að sérstöku lágmarksframfærsluviðmiði fyrir lífeyrisþega og jafnframt flýta þeirri vinnu eins og kostur er. Lágmarksframfærsluviðmiðið taki meðal annars tillit til hækkunar lægstu launa í nýgerðum kjarasamningum og liggi fyrir eigi síðar en 1. júlí 2008.
Að sögn Ofangreindar aðgerðir eru í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamninga Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins. Koma þær til viðbótar þeim kjarabótum lífeyrisþega sem tilkynntar voru með yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í desember síðastliðnum og koma til framkvæmda í áföngum á árinu, fyrst með afnámi makatengingar þann 1. apríl næstkomandi. Þær aðgerðir ásamt þeim hækkunum lífeyris sem taka gildi frá 1. febrúar síðastliðnum nema um það bil 9 milljörðum króna á ári þegar þær verða að fullu komnar til framkvæmda.
Bloggað um fréttina
-
Björgvin Guðmundsson Hækkun til aldraðra skorin niður í 4%. Átti að vera ... -
Kristbjörg Þórisdóttir Skref í rétta átt -
Þórarinn Þ Gíslason 18000 KRÓNUR Á FÆTI EN 74OO KRÓNUR Í SÆTI! (öryrkjar;ellilífeyrisþegar)! -
Guðmundur Jónas Kristjánsson Félagsmálaráðherra lækkar í raun almannatryggingar
Innlent »
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 28. mars 2008, Innlent Segja ekki staðið við samkomulag um hækkun bóta
- Miðvikudagur, 24. desember 2008, Innlent Flýta hækkun atvinnuleysisbóta
- Þriðjudagur, 16. september 2008, Innlent Lágmarksframfærslutrygging hækkar
- Föstudagur, 24. apríl 2009, Innlent Launavísitala hækkar um 0,1%
- Þriðjudagur, 24. febrúar 2009, Innlent Skoða hækkun lægstu launa
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur



































