Þrír rændu manni í Breiðholti

mbl.is/Július

Þrír karlmenn tóku mann með ofbeldi í Hólahverfi í Breiðholti í nótt og börðu hann áður en þeir fluttu hann nauðugan inn í bíl og óku á brott, að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 

Sjónvarvottur sá númerið á bílnum og lét lögreglu vita, en bíllinn var stöðvaður á Reykjanesbraut, nálægt Hafnarfirði.   Lögregla handtók mennina þrjá og frelsaði manninn sem varð fyrir ofbeldinu.

Að sögn lögreglu er málið í rannsókn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert