Hálka og skafrenningur á Hellisheiði

Hálka og skafrenningur er á Hellisheiði og hálkublettir í Þrengslum og á
Sandskeiði. Á Suðurlandi er hálka, snjóþekja og sumstaðar þæfingsfærð, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni í morgun. Á Suðausturlandi er þungfært um Hvalnes og þæfingur þaðan og að Höfn.
Snjóþekja og hálkublettir eru frá Höfn og að Vík.

Á Vesturlandi eru allar helstu leiðir greiðfærar.

Á Vestfjörðum og á Norðurlandi er víða greiðfært á láglendi en hálka og hálkublettir á fjallvegum. Ófært er um Lágheiði.

Á Norðaustur- og Austurlandi er víða snjóþekja, hálka og hálkublettir.

Þæfingsfærð er á Möðrudalsöræfum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert