Tvær líkamsárásir í gærkvöldi

mbl.is/Júlíus

Tvær líkamsárásir áttu sér stað í höfuðborginni í gærkvöldi. Önnur var gerð í Tryggvagötu kl. 4:50 þar sem einn maður var laminn illa og var hann fluttur á slysadeild og talinn alvarlega slasaður. Ekki er búið að hafa upp á árásaramönnunumog er málið í rannsókn.

Hin líkamsárásin átti sér stað á skemmtistaðnum Nasa kl. 5:30 en þar var maður sleginn í andlitið og var hann fluttur á slysadeild. Einn maður var handtekinn í tengslum við málið og gistir hann fangageymslur, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert