Biðlistar eiga að heyra sögunni til

Biðlistar eftir augnsteinsaðgerðum ættu að heyra sögunni til á næsta ári eftir að samið var við fyrirtækin Sjónlag og LaserSjón um hátt á annað þúsund augnsteinsaðgerðir, samkvæmt tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.

Samningur Sjónlags hf. og samninganefndar heilbrigðisráðherra (SHBR) um augasteinsaðgerðir er undirritaður í framhaldi af útboði, sem Ríkiskaup annaðist, í febrúar sl.

 Í útboðinu var óskað eftir tilboðum frá augnlæknum eða einkareknum augnlæknastofum í framkvæmd 800 augasteinsaðgerða (kataraktaðgerða) á ári næstu tvö til fjögur ár.  Niðurstaða útboðsins var að ganga til samninga við augnlæknastofurnar Sjónlag hf. og LaserSjón ehf.  um samtals 1.600 augasteinsaðgerðir næstu tvö árin. 

 „Á undanförnum misserum hefur Landsspítalinn ekki annað eftirspurninni og bið eftir augasteinsaðgerðum óviðunandi. Með samningunum við Sjónlag og Lasersjón er ætlunin að fjölga aðgerðunum hér á landi úr 1.800 í 2.600 á ári eða um rúm 44%.  Á næsta ári ætti biðlisti eftir augasteinsaðgerðum þar með að geta heyrt sögunni til.

Ský á augasteini er einn algengasti augnsjúkdómur hér á landi eins og víðast hvar annars staðar.  Ský á augasteini er jafnan stigvaxandi og gengur ekki til baka. Það hindrar sjón á svipaðan hátt og móða á milli glerja og getur valdið blindu ef ekkert er að gert.  Meðferð á öðru auga telst ein aðgerð og er áætlað að á Íslandi þurfi um 2.400 aðgerðir á ári," samkvæmt tilkynningu.

Aðgerðir á auglæknastofu í stað sjúkrahúss

Segir í tilkynningu að samningurinn við Sjónlag marki tímamót þar sem sjúklingar sem þurfa að fara í augasteinsaðgerð geta nú í fyrsta sinn leitað til augnlæknastofu utan sjúkrahúsanna, en fram að þessu hafa einungis læknar á Landsspítala, St. Jósefsspítala – Sólvangi og Sjúkrahúsi Akureyrar veitt þessa þjónustu.

Heildarkostnaður 62 milljónir króna

Heildarkostnaður vegna samnings Sjónlags og SHBR er áætlaður um 62 milljónir króna og hlutdeild TR 52 milljónir króna. Mismunurinn samsvarar kostnaði hinna sjúkratryggðu, en hlutdeild sjúklinga er breytileg og fer t.d. eftir því hvort þeir eru elli- eða örorkulífeyrisþegar og hvort þeir eru með afsláttarkort eða ekki.

„Miklar framfarir hafa orðið í augasteinsaðgerðum undanfarin ár.  Aðgerðirnar kalla ekki lengur á innlögn sjúklinga og tekur hver aðgerð nú aðeins 10-15 mínútur.  Fyrir 15 til 20 árum tók hún á hinn bóginn um klukkustund og sjúklingar þurftu að liggja inni á sjúkrahúsi í þrjá daga.  Í nágrannalöndum okkar er nú áætlað að um 70% þessara aðgerða séu framkvæmdar utan sjúkrahúsa.  Samningurinn við Sjónlag hf. felur þannig í sér aðlögun að nýjum tíma og mun gera sjúkrahúsunum kleift að nýta aðstöðu sína og mannafla til að efla ennfrekar þá þjónustu sem þau ein geta veitt.  Læknar Sjónlags ehf. áætla að hefja augasteinsaðgerðir samkvæmt hinum nýja samningim í lok þessa mánaðar," samkvæmt tilkynningu.

 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »
Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara pening og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Fyrst til að verða meistari í bílasmíði

Anna Kristín á leið í útskriftina í gær.
21:19 „Áhuginn hafði alltaf blundað í mér,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir, sem í gær útskrifaðist með meistarapróf í bílasmíði fyrst íslenskra kvenna. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944-1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholti fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Hvítt rimlarúm á hjólum til sölu!
Fallegt hvítt rimlarúm á hjólum til sölu. Hægt að lækka aðra hliðina niður og 2 ...
Til sölu Skoda Octavia
Skoda Octavia 1600, bensín ,árg. 2000 beinskiptur, næsta skoðun 2013 (númer í g...
TOYOTA LAND CRUISER 100 VX, 2004
Til sölu "Gullmoli" aðeins ekinn 87Þ. km. einn með öllu. Dísel Uppl. í síma 899...
Toyota Yaris árgerð 2006 DIESEL !!!
Toyota Yaris Diesel árgerð 07/2006. Ekinn 79.000 km. Sjálfskiptur. 5 dyra. Sil...
 
Til sölu
Til sölu
Viðskiptatækifæri Sey...
Starfsmaður í mötuneyti
Önnur störf
Starfsmaður í mötuneyti Morgunblaðið ...
Sýslumaðurinn í hafnarfirði - framhald uppboð

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Einstakt atvinnutækifæri
Til sölu
Einstakt atvinnutækifær...