Ný velferðar- og vinnumálastofnun sett á laggirnar

Jóhanna Sigurðardóttir

Jóhanna Sigurðardóttir mbl.is/Frikki

Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra hefur ákveðið að kanna kosti þess að setja á fót nýja stofnun velferðar- og vinnumála með því að samþætta starfsemi Tryggingastofnunar ríkisins og Vinnumálastofnunar. Þetta kom fram í setningarávarpi hennar á fjölþjóðlegri ráðstefnu um lífeyriskerfi framtíðarinnar sem nú stendur yfir.

Í ávarpi sínu lagði ráðherra áherslu á þá stefnu ríkisstjórnarinnar að einfalda almannatryggingakerfið sem í áratugi hafi verið umtalað sem flókið og jafnvel óskiljanlegt þeim sem það á að þjóna. Þessu þarf að breyta, sagði ráðherra, en sagðist jafnframt vilja ganga lengra og skapa lífeyriskerfi til framtíðar sem sé uppbyggilegt fyrir sérhvern einstakling og samfélagið í heild:

„Því áforma ég að láta skoða hvernig við getum byggt á grunni tveggja mikilvægra stofnana, Tryggingastofnunar ríkisins og Vinnumálastofnunar, nýtt sóknarfæri og samlegðaráhrif með uppbyggingu nýrrar stofnunar velferðar- og vinnumála. Þetta vil ég vinna í fullu samráði við þessar stofnanir og starfsfólk þeirra. Þar búum við að mikilvægum mannauði, þekkingu og reynslu sem mikilvægt er að nýtist áfram í því breytingarferli sem framundan er.

Báðar þessar stofnanir heyra nú undir félags- og tryggingamálaráðuneytið þannig að ég hef nú tækifæri til þess að horfa heildstætt á þessi tvö svið. Með breytingu á verkaskiptingu milli heilbrigðis og félagsmálaráðuneytisins um s.l. áramót opnast þetta tækifæri, sem hvorttveggja í senn gefur tækifæri til að auka og bæta þjónustu við fólkið í landinu, tryggja betri heildaryfirsýn og faglega framkvæmd og ráðgjöf við almenning. Þannig væri hægt að koma fyrir á einum og sama stað allri þeirri velferðarþjónustu sem er á sviði vinnumála- og tryggingamála í eina stofnun, stofnun velferðar- og vinnumála með sameiginlegum þjónustuverum um land allt.

Með þessu gerum við hvorttveggja í senn; einföldum og bætum alla þjónustu við fólkið í landinu og stuðlum að hagkvæmni í ríkisrekstri. Við eigum að horfa til þess eins og ég hef hér lýst að byggja upp eina velferðstofnun þar sem allir þræðir sem eflt geta einstaklinga og tryggt framlag þeirra til samfélagsins verða fléttaðir saman á uppbyggilegan hátt ásamt því að tryggja viðunandi lífeyri í samspili við lífeyrissjóðina."


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Gæsluvarðhaldið staðfest

18:29 Úrskurður um gæsluvarðhald hefur verið staðfestur yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »
Frá Ísafirði. Úr myndasafni.

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Þjófar í gæsluvarðhald

15:39 Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir voru handteknir í gærmorgun eftir að þeir höfðu brotist inn í hús í Grafarvogi en þýfi fannst í fórum þeirra. Meira »

Betur má ef duga skal

15:20 Umferðarráð telur mikilvægt að ekki verði slakað á kröfum til að viðhalda og byggja áfram upp öruggt og skilvirkt vegakerfi. Það hvetur stjórnvöld til að standa vörð um umferðaröryggi allra landsmanna við framkvæmdir í vegagerð. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Átak gegn ölvunarakstri

Úr safni.
15:29 130 ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í gærkvöld í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Einn þeirra reyndist ölvaður við stýrið og á viðkomandi ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Þremur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum. Meira »

Framsetning flugmiðaverðs óskýr

Flugvél Iceland Express í höfn
14:40 Auðvelt er að gera verðsamanburð á milli bókunarvéla flugfélaganna á vefnum en mismunandi er hvernig verð flugmiða er sett þar fram. Getur þannig reynst viðskiptavinum flókið að átta sig á því í hverju hin ýmsu aukagjöld, sem eru hluti af fargjaldi, felast. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu 15" Álfelgur undan Toyotu Avensis "01
Til sölu 15" Álfelgur undan Toyotu Avensis "01 4 stk. Verð 15.000kr. Uppl. í sím...
TOYOTA LAND CRUISER
Toyota Land Cruiser 120 VX Nýskr. 9/2005, ekinn 153 þ. km, d...
HÚSBÍLL
FORD 1986 38" ísskápur, vaskur og eldavél. verð 390.þús. uppl. 6595055...
HÚS TIL LEIGU Í VENTURA, ORLANDO, USA
Til leigu huggulegt hús á frábærum stað í Orlando,18h.golfvöllur/ódýrt spil,sund...
 
Menntunarsjóður mæðrastyrksnefndar reykjavíkur

MENNTUNARSJÓÐUR Mæðrastyrksnefndar Re...
Sýslumaðurinn á sauðárkróki - framhald uppboðs

Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi e...
Sýslumaðurinn í hafnarfirði - framhald uppboð

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....