Tíu teknir ölvaðir undir stýri

mbl.is/Júlíus

Tíu ökumenn voru stöðvaðir af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu ölvaðir við akstur frá klukkan 17 í gær þar til í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var einn þeirra svo ölvaður að vegfarendur stöðvuðu akstur hans og létu lögreglu vita. Var það síðdegis í gær. Annar réðst á lögregluþjón þegar hann var látinn blása í blöðru. Að öðru leyti var rólegt yfir höfuðborginni í nótt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert