Tveir í haldi eftir að fíkniefni fundust við húsleit

Lauf kannabisplöntunnar.
Lauf kannabisplöntunnar. mbl.is

Allnokkurt magn af marijúana fannst við húsleit í miðborginni í gærkvöld. Á sama stað lagði lögreglan hald á tæplega 400 þúsund krónur í peningum sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Húsráðandi og annar maður til voru handteknir vegna rannsóknar málsins, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka