Verið að fara yfir ferjumál

Vestmannayjaferjan eins og fyrirhugað er að hún muni líta út …
Vestmannayjaferjan eins og fyrirhugað er að hún muni líta út samkvæmt hugmyndum Eyjamanna. Ljósmynd/Harald M. Valderhaug

Kristján L. Möller, samgönguráðherra, sagði eftir ríkisstjórnarfund í dag, að engin ákvörðun hefði verið tekin um málefni nýrrar Vestmannaeyjaferju.

Kristján sagði, að verið væri að fara yfir málið í samgönguráðuneytinu en ljóst væri, að útboð vegna ferjunnar hefði verið á óheppilegum tíma og fjármagnskostnaður hefði hækkað mikið.

Kristán vildi þó ekki svara því hvort til greina kæmi að fresta málinu, en lagði áherslu á að verið væri að vinna að því að finna varanlega lausn í samgöngumálum Eyjamanna. 

Vestmannaeyjabær og Vinnslustöðin lögðu í síðustu viku fram nýtt tilboð í smíði og rekstur nýrrar ferju, sem gangi á milli Eyja og Bakkafjöruhafnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert