Mikill erill á Selfossi

Mikill erill hefur verið hjá lögreglunni á Selfossi í dag. Ferðamaður féll m.a við Kerið og hlaut við það beinbrot. Þá varð bílvelta á Biskupstungnabrautvið Svínavatn í Grímsnesi klukkan 16:23. Þrír voru í bílnum og sluppu þeir ómeiddir. 

Lögreglan á Selfossi hafði einnig afskipti af einum ölvuðum ökumanni, tveimur ökumönnum sem sviptir höfðu verið ökuréttindum og fimm ökumönnum sem óku of hratt. Sá sem hraðast ók mældist á 125 km hraða og má hann eiga von á 50.000 króna sekt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert