Segir Skipulagsstofnun hafa farið út fyrir hlutverk sitt

Samorka, samtök orku- og veitufyrirtækja, segir vandséð annað en að Skipulagsstofnun hafi farið út fyrir lögbundið hlutverk sitt þegar hún lýst því yfir að bygging Bitruvirkjunar  sé óviðunandi.

Á heimasíðu Samorki segir, að lögum um mat á umhverfisáhrifum hafi verið breytt árið 2005 og í frumvarpinu hafi meðal annars sagt um helstu breytingar á lögunum, að í matsferlinu verði ekki tekin afstaða til þess hvort fallast beri á með eða án skilyrða eða leggjast gegn framkvæmd sem lýst hefur verið með fullnægjandi hætti í matsskýrslu framkvæmdaraðila.

Samorka segir, að hlutverk Skipulagsstofnunar sé fyrst og fremst að staðfesta að umhverfismat hafi verið unnið með lögbundnum hætti. Varðandi Bitruvirkjun hafi stofnunin staðfest að matið hafi verið unnið með lögbundnum hætti en jafnframt komist að þeirri niðurstöðu að bygging Bitruvirkjunar sé „ekki ásættanleg vegna verulegra neikvæðra og óafturkræfra áhrifa á landslag, útivist og ferðaþjónustu.“ Vandséð er annað en að með þessari niðurstöðu sé stofnunin komin út fyrir lögbundið hlutverk sitt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum.

Þá sé ljóst, að   álit Skipulagsstofnunar, þess efnis að virkunin sé óviðunandi, sé á engan hátt bindandi, hvorki fyrir sveitarfélagið sem fari með skipulagsvaldið, né fyrir iðnaðarráðherra sem veiti nýtingarleyfi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert