BHM mótmælir vinnubrögðum samninganefndar ríkisins

Staða samningamála var rætt yfir svonefndu kjarakaffi BHM í morgun. stækka

Staða samningamála var rætt yfir svonefndu kjarakaffi BHM í morgun.

Bandalag háskólamanna lýsir yfir óánægju með þau vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið við yfirstandandi kjarasamningagerð af hálfu samninganefndar ríkisins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá BHM.
 
„Aðildarfélög BHM fara hvert um sig með samningsumboð fyrir sína félagsmenn.  Þau hafa falið BHM umboð til að ræða sameiginleg málefni félaganna við samninganefnd ríkisins.   Nú liggur fyrir að aðildarfélögum BHM bjóðast tveir valkostir.  Annars vegar að gangast inn á samning eins og þann sem gerður var við BSRB og SGS án frekari útfærslu, eða að hafna því tilboði. Slíkur samningur þýddi umtalsverða kaupmáttarskerðingu fyrir félagsmenn aðildarfélaga BHM.
 
Samningsrétturinn fótum troðinn

Bandalag háskólamanna túlkar þessi vinnubrögð samninganefndar ríkisins sem yfirlýsingu um að aðkoma aðildarfélaga bandalagsins að samningaviðræðum sé óþörf.  Bandalagið sættir sig ekki við að umboð aðildarfélaga þess til samningagerðar sé virt að vettugi á þennan hátt," segir í tilkynningu frá BHM.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Frá vettvangi á Hverfisgötu.

Handtekinn vegna sprengjumáls

17:41 Karlmaður var handtekinn á Suðurnesjum í dag í tengslum við rannsókn lögreglu á sprengju sem fannst við Hverfisgötu í Reykjavík á síðasta degi janúarmánaðar. Samkvæmt heimildum mbl.is var einnig lagt hald á bifreið. Yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar vildi ekki tjá sig um málið. Meira »

Náð samkomulagi um vaxtabætur

17:35 Fulltrúar Landssamtaka lífeyrissjóða og stjórnvalda hafa náð samkomulagi um hlutdeild lífeyrissjóðanna í fjármögnun á sérstökum vaxtabótum. Samkvæmt því munu lífeyrissjóðirnir styðja við framkvæmd áætlunar um að aflétta gjaldeyrishöftum. Sjóðirnir munu m.a. taka þátt í gjaldeyrisútboðum Seðlabanka Íslands á komandi mánuðum. Meira »

Hnífstungumaður áfram í gæsluvarðhaldi

Héraðsdómur Reykjaness.
17:28 Héraðsdómur Reykjaness féllst í morgun á kröfu lögreglu höfuðborgarsvæðisins um framlengingu gæsluvarðhald yfir karlmanni á þrítugsaldri sem stakk annan um fertugt í Kópavogi aðfaranótt föstudagsins 3. febrúar sl. Maðurinn verður í haldi til 9. mars nk. Meira »

Keppt í hugviti myndskeið

Verkfradakeppni
17:04 Í dag fór fram Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands. Í ár var nýtt fyrirkomulag á keppninni þar sem tvö lið öttu kappi samtímis en markmiðið var að setja niður fána á miðri braut þar sem hraði og nákvæmni búnaðarins sem nemendur smíðuðu skipti öllu máli. Meira »

Margt um manninn á Bessastöðum

Bílum er lagt meðfram heimreiðinni að Bessastöðum.
16:17 Margir hafa ákveðið að grípa tækifærið og heimsækja Bessastaði og Bessastaðakirkju sem eru opin almenningi í dag milli kl. 16 og 20. Opnunin er í tilefni Safnanætur og Vetrarhátíðar í Reykjavík. Meira »

Á fimmta tug umsókna um starf

Innanríkisráðuneytið er til húsa við Sölvhólsgötu 7, gegnt Seðlabankanum.
17:17 Umsækjendur um embætti skrifstofustjóra á skrifstofu fjármála og rekstrar í innanríkisráðuneytinu eru 44. Embættið var auglýst laust til umsóknar 6. janúar og rann umsóknarfrestur út 26. þess mánaðar. Meira »

Greiddi fyrir vændi barns

16:50 Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt karlmann í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að greiða 14 ára pilti fyrir kynferðismök. Maðurinn játaði sök. Meira »

Tilraunaverkefni í vinnumiðlun

Samningurinn var undirritaður í dag.
16:14 Í dag var undirritað samkomulag um að setja í gang tilraunaverkefni sem hefur að markmiði að auka og efla vinnumiðlun, ráðgjöf og þjónustu við atvinnuleitendur. Það mun ná til um 25% atvinnuleitenda á landinu. Stefnt er að því að verkefnið hefjist í byrjun maí. Meira »

Samstaða gerir athugasemd við Samstöðu

Frá stofnfundi Samstöðu, stjórnmálaflokks undir forystu Lilju Mósesdóttur.
16:06 Stéttarfélagið Samstaða í Húnavatnssýslum gerir athugasemd við nafn nýs flokks Lilju Mósesdóttur sem ber nafnið Samstaða.  Meira »

Stefna að opnun í Skálafelli

Stefnt er að því að opna í skíðasvæðið í Skálafelli.
16:03 Borgarráð hefur samþykkir að beina því til stjórnar skíðasvæðanna að hefja viðræður við skíðadeild KR um að deildin sjái um rekstur svæðisins. Meira »

Vilja framkvæmdastjóra á skrifstofuna

Séð yfir Skeiða- og Gnúverjahrepp.
16:04 Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps hefur samþykkt að lækka starfshlutfall oddvita og að ræða við Kristófer Arnfjörð Tómasson viðskiptafræðing, um að taka að sér framkvæmdastjórastöðu hjá sveitarfélaginu. Meira »

Boðuð á fund í Reykjavík

Össur Skarphéðinsson og Jóhanna Sigurðardóttir
16:00 Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafa reynt að fá Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, norður á fund vegna alvarlegra stöðu í byggðamálum. Samtökin hafa nú verið boðuð á fund í Reykjavík ásamt öðrum fulltrúum landshlutasamtaka. Meira »

Skipulagsmálum víða áfátt

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
15:57 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir að ekki sé rétt að hús hafi verið rifin í borginni Bakú í Aserbaídsjan vegna byggingar Kristalshallarinnar. Hann segir að nóg sé að fara í miðbæ Reykjavíkur til að finna fólk sem búi í óvissu um nánasta umhverfi sitt og í grennd við hús sem séu látin drabbast niður. Meira »

Ekið á stúlku á Akureyri

15:38 Ekið var á stúlku á Mýrarvegi á Akureyri um hádegisleytið í dag. Stúlkan sagði við bílstjórann að hún væri ómeidd og hélt hann því leiðar sinnar. Skömmu síðar kom í ljós að hún var með minniháttar meiðsli á fæti. Meira »

Bjóða brúðhjónunum til Íslands

15:25 Iceland Express ætlar að bjóða breskum brúðhjónum til Íslands en parið varð fyrir því að brotist var inn hjá því á brúðkaupsnóttina og peningum sem ætlaðir voru í brúðkaupsferð til Íslands stolið. Brúðurin fór að gráta af gleði er hún fékk símtalið frá Iceland Express. Meira »

Bleikjueldi ekki háð umhverfismati

15:47 Eldi á allt að 200 tonnum af bleikju á ári í Galtalæk, Rangárþingi ytra, er ekki háð mati á umhverfisáhrifum að mati Skipulagsstofnunar. Íslensk matorka rekur fiskeldisstöðina í Galtalæk. Meira »

Karl biskup í Kenía

Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands.
15:34 Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands hefur undanfarna tvo daga heimsótt starfssvæði íslenskra kristniboða í Pókothéraði í Keníu ásamt Jónasi Þórissyni framkvæmastjóra Hjálparstarfs kirkjunnar. Meira »

Um 65% með leka púða

Búið er að skoða um 100 konur sem eru með PIP-púða.
15:16 Rúmlega 100 konur sem erum með PIP-brjóstapúða eru búnar að koma í ómskoðun hjá Krabbameinsfélaginu. Um 65% þeirra eru með leka púða. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Mývatnssveit - sumarhúsalóðir
Í kjarrivöxnu skjólgóðu hrauni eru sumarhúsalóðir til leigu í Mývatssveit, heitt...
Til sölu eða leigu
Til sölu eða leigu það sem vantar í lýsingu og myndir er að bílskúrinn er mjög r...
Gamla innréttingin eins og ný
Hefur þig langað að skipta út gömlu innréttingunni en ekki lagt í kostnaðinn eða...
Toyota Rav 4X4 árg. 2007 2,4 l. vél
Toyota Rav 4X4 árg. 2007, ek. 75 þ., sjálfskiptur., Cr. Control, AC, 18" vetrard...
 
Stúkan hekla
Félagsstarf
mHekla 6012020619 IV/ V...
Samkoma
Félagsstarf
Kaffi Amen,föstudagur kl. 21Lifan...
Samkoma hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Samkoma sunnudag kl. 17 Kafteinn ...
Sýslumaðurinn í keflavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....