Sturla stofnar nýjan stjórnmálaflokk

Sturla Jónsson, talsmaður atvinnubílstjóra
Sturla Jónsson, talsmaður atvinnubílstjóra mbl.is/Kristinn

Sturla Jónsson, talsmaður vörubílsstjóra, og samstarfsmenn hans sem staðið hafa í baráttumálum vörubílstjóra, hafa ákveðið að stofna nýjan stjórnmálaflokk, Lýðræðisflokkinn.  „Þetta er er í vinnslu, við stofnuðum flokkinn í gær og ætlum að klára stefnuskrána um helgina, og hún verður kynnt í næstu viku," segir Sturla í samtali við mbl.is.

Sturla segir fólk úr öllum stéttum þjóðfélagsins koma að flokknum.  „Við settum á blað 12 mál sem okkur finnst brenna á þjóðinni, og ætlum að snúa okkur að fólkinu í landinu.  Við munum halda fund þar sem fólk getur skráð sig í flokkinn og hlustað á stefnumál okkar," segir Sturla og bætir við að þeir séu búnir að fá gríðarlega góðar undirtektir í þjóðfélaginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert