Norsku feðgarnir fundnir

Jökulsárlón.
Jökulsárlón. mbl.is/Ómar

Norsku feðgarnir sem leitað var að fundust í morgun við Jökulsárlón og ekkert amaði að þeim, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Húsavík. Lögreglan á Húsavík, björgunarsveitir á Austurlandi sem og nokkrar björgunarsveitir á Norðausturlandi leituðu þeirra í gærkvöldi og í nótt.

Feðgarnir, Tore Holt, sem er fertugur, og Sebastian Holt, átta ára gamall sonur hans, höfðu ekkert látið vita af sér síðan sl. fimmtudag og farið var að óttast um þá í gærkvöldi. 

Þeir komu til landsins sl. þriðjudag með Norrænu og eiga að fara til baka á morgun miðvikudag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert