Mikill erill hjá lögreglu

mbl.is/Július

Mjög margt fólk var í miðborginni í nótt og komu 113 mál til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá miðnætti þar til klukkan sjö í morgun. Þar af voru fimm minniháttar líkamsárásir, þrír voru teknir fyrir ölvun við akstur og einn undir áhrifum fíkniefna. Átta brutu gegn lögreglusamþykktum.

Sjö gistu fangageymslur lögreglunnar í nótt en mikil ölvun var í miðbænum eftir miðnætti. 

Umferð gekk vel eftir tónleikana í Laugardalnum í gærkvöldi og allt fór vel fram á tónleikunum að sögn lögreglu. Talið er að þegar flest var á tónleikunum hafi um þrjátíu þúsund manns verið á svæðinu.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka