Ein stærsta ferðahelgi landsins framundan

Frá tjaldstæðinu við Þórsheimilið á Akureyri

Frá tjaldstæðinu við Þórsheimilið á Akureyri mbl.is/Margrét Þóra

Fyrsta helgin í júlí hefur um skeið verið ein mesta ferðahelgi landsins og búist er við mikilli umferð um land allt. Lögreglan hefur af þessu tilefni sérstakt samstarf og verður með aukið eftirlit á vegum og útivistarsvæðum.

Um komandi helgi fer í hönd ein stærsta umferðarhelgi ársins. Margt kemur til, veðurspá er góð, hátíðarhöld víða um land og skólafólk með sína fyrstu útborgun í vasanum eftir að hafa unnið fyrsta mánuðinn í sumarvinnunni. Reynslan sýnir að um þessa helgi hópast ungmenni af stað og hefur það gerst að þau hafi slegið upp tjaldbúðum utan skipulagðra tjaldsvæða þar sem ekki er gæsla eða aðstaða af neinu tagi. Því vill lögreglan beina þvi til foreldra að fylgjast með og ferðast með börnum sínum og taka  þátt í skemmtuninni þannig að ekki sé um eftirlitslausar samkomur að ræða á stöðum sem ekki eru ætlaðir til slíks samkomuhalds.

 Á Gaddstaðaflötum á bökkum Ytri – Rangár er gert ráð fyrir 12 til 15 þúsund manns á Landsmóti hestamanna. Þá má gera ráð fyrir að dvalið verði í flestum sumarhúsum Árnes- og Rangárvallasýslna sem og tjaldstæðum um allt Suðurland. Því er ekki ólíklegt að 30 til 50 þúsund manns verði á ferð um þessar tvær sýslur um helgina.

 Til að bregðast við þessu hafa lögregluliðin á Hvolsvelli, á Selfossi og umferðardeild lögreglu höfuðborgarsvæðisins haft með sér samstarf og munu lögreglumenn á  12 til 15 merktum  tækjum lögreglu sinna eftirliti á vegum úti á leiðinni frá Reykjavík austur um Árnes-, Rangárvalla-, og Vestur Skaftafellssýslu og út frá Þjóðvegi 1.

Þá mun þyrla landhelgisgæslunnar, samkvæmt þjónustusamningi ríkislögreglustjóra við gæsluna, einnig fljúga með lögreglumenn frá Selfossi til umferðarefltirlits að minnsta kosti tvo daga og beinist það eftirlit að SV horninu öllu eftir því sem verkefni koma upp. Lögð verður áhersla á að ná til þeirra sem hraðast aka og erfitt reynist að ná til með öðrum hætti ásamt því að fylgjast sérstaklega með ástandi ökumanna með tillti til ölvunar og / eða vímuefnanotkunar.

Vegna hátíðarinnar Írskir dagar sem verður sett á Akranesi á morgun er lögreglan á Akranesi í sérlegu samstarfi við lögregluna í Borgarnesi, á höfuðborgarsvæðinu og sérsveitina. Búist er við talsverðum mannfjölda.

Þeim sem hyggja á ferðalög er bent á að gera nágrönnum sínum viðvart um það og fá þá til að hafa augun með eigum sínum en þekkt er að óprúttnir aðilar noti sér fjarveru fólks til þjófnaða.

Lögreglan skorar á vegfarendur að sýna aðgát í umferðinni, gæta þess að ökutæki og eftirvagnar séu í góðu lagi og að ökumenn séu það einnig. Mikill umferðarþungi kallar á þolinmæði og tillitssemi við samferðamenn okkar. Þannig stuðlum við að því í sameiningu að allir komist heilir á leiðarenda.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »
Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Whippet hvolpar
Hvolpar fæddir 27.04.12 nánari upplýsingar í síma 8603150 og gunnur@simnet.is w...
Sumarhúsalóðir í Vaðnesi
Til sölu fallegar sumarhúsalóðir í kjarrivöxnu landi Vaðness í Grímsnes- og Gra...
ÁRSREIKNINGAR LÖGAÐILA
Ársreikningar lögaðila (ehf.) Færsla á bókhaldi, ...
50 vinsælustu vörurnar í netverslun femin.is
Kynntu þér fjölbreytt úrval í netverslun www.femin.is og yfir 7.000 vöruliði ! ...
 
Akstur fyrir strætó

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Uppgjörsvinna
Skrifstofustörf
Uppgjörsvinna Endurskoðunarskrifstofa au...
Kennarar og leikskólakennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Hafralækjarskóli og Litlulaugaskóli í Þ...
Reykjanesbær sjóvarnir

Útboð Reykjanesbær, sjóvarnir 2012...