Kaupmenn hvattir til að halda hækkunum í lágmarki

Kaupmenn eru hvattir til að stilla hækkunum í hóf.
Kaupmenn eru hvattir til að stilla hækkunum í hóf. mbl.is/ÞÖK

Gríðarlegar áhyggjur af stöðu efnahagsmála koma fram í tilkynningu sem fjölmiðlar fengu frá stjórn Verkalýðsfélagi Akraness. Þar er lýst miklum áhyggjum vegna mikillar verðbólgu og himinhárra vaxta sem eru sagðir vera að sliga mörg íslensk heimili.

Í fréttatilkynningunni segir:

„Í síðustu kjarasamningum var gengið frá hófstilltum og skynsamlegum samningum sem höfðu það markmið að auka kaupmátt íslensk verkafólks og stuðla um leið að stöðugleika í íslensku efnahagslífi. Á þeirri forsendu er grátlegt fyrir íslenskt verkafólk að sjá að sá ávinningur sem náðist í síðustu kjarasamningum sé gufaður upp vegna aðgerða- og úrráðaleysis ríkisstjórnar Íslands í efnahagsmálum.

Það er morgunljóst að það er fátt sem getur komið í veg fyrir að kjarasamningar á hinum almenna vinnumarkaði verði ekki sagt upp í febrúar þegar að endurskoðun kjarasamninga fer fram. Það er einnig ljóst að íslenskt verkafólk mun ekki sætta sig við að gera hófstillta kjarasamninga slag í slag til að tryggja hér stöðugleika þegar lítið sem ekkert kemur frá ríkisstjórn Íslands í þeim efnum.

Það er mat stjórnar Verkalýðsfélags Akraness að mörgum íslenskum heimilum muni blæða út ef ríkisstjórn Íslands grípur ekki til tafarlausra aðgerða til að ná vöxtum og verðbólgu niður.

Stjórn VLFA skorar á alla verslunareigendur og stórkaupmenn að takmarka hækkanir á vörum sínum eins og kostur er og leggja þannig sitt af mörkum við að vinna bug á þeirri gríðarlegri verðbólgu sem nú ríkir í íslensku samfélagi. 

Stjórn VLFA skorar á ríkisstjórn Íslands að lækka álögur á eldsneyti vegna mikillar hækkunar á heimsmarkaðsverði. Slíkt mun klárlega hjálpa íslenskum neytendum og slá á verðbólguna. Einnig skorar stjórn félagsins á stjórnvöld að grípa þegar til aðgerða til að koma í veg fyrir vaxandi atvinnuleysi í því sambandi telur stjórnin mikilvægt að ríkið auki mannaflsfrekar framkvæmdir svo sem hin ýmsu viðhaldsverkefni."


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert