Seinheppinn þjófur á Akureyri

stækka

Mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Lögreglan á Akureyri fékk í gærkvöldi tilkynningu um mann sem hefði stolið myndavél á bæ í Hörgárdal. Húsráðandi kom að manninum inni í bænum en þjófurinn hljóp út er hann varð var við húsráðanda og upp í bifreið en annar aðili beið í bifreiðinni fyrir utan bæinn. 

Náði þjófurinn að hafa á brott með sér myndavél. Húsráðandi gaf lögreglu lýsingu á manninum og bifreið sem hann var á.  Lögreglumennirnir sem  fóru og ræddu við húsráðanda á bænum hófu strax leit að manninum og bifreiðinni en án árangurs. 

Er annar lögreglumaðurinn sem ræddi við húsráðandann var kominn heim til sín eftir vakt var bankað upp á hjá honum.  Lögreglumaðurinn fór til dyra en þar stóð maður sem að spurði til vegar og virkaði mjög undarlegur.  

Lögreglumaðurinn spurði hann hvert erindi hans væri í hverfið og svaraði maðurinn að hann væri að leita að einhverjum manni sem hann vissi ekki nákvæmlega hver væri.

Maðurinn hélt síðan för sinni áfram en hann virkaði í annarlegu ástandi. Lögreglumaðurinn hafði strax samband við lögreglustöðina á Akureyri og óskaði eftir aðstoð. Lögreglumaðurinn fylgdi svo manninum eftir en lögreglumaðurinn áttaði sig á því að lýsingin á þjófinum í Hörgárdal passaði við þennan aðila.

Lögreglumaðurinn missti sjónar af manninum um stund en er hann var að leita að honum aftur sá hann bifreið sem að passaði við lýsinguna á bifreiðinni er hafði verið notuð við þjófnaðinn fyrr um daginn. Voru tveir aðilar í henni og virtust þeir vera að bíða eftir einhverjum.  

Lögreglumaðurinn fylgdist með bifreiðinni en stuttu síðar kom aðilinn sem bankað hafði upp á hjá honum að bílnum en var þá með íþróttatösku meðferðis. Bifreiðinni var ekið af stað en lögreglumenn á vakt sem að voru á leið til aðstoðar, stöðvuðu bifreiðina rétt eftir að henni var ekið af stað.

Mennirnir í bifreiðinni voru handteknir og kom þá í ljós að í íþróttatöskunni var þýfi úr íbúð á Akureyri en aðilinn hafði brotist inn í þá íbúð skömmu áður en þeir voru stöðvaðir. 

Einnig viðurkenndi sá að hafa farið inn í bæinn í Hörgárdal og stolið þaðan myndavél.  Mennirnir þrír voru fluttir á lögreglustöðina á Akureyri en ökumaður bifreiðarinnar var einnig kærður fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna.

Lögreglu grunar að hugsanlega hafi þjófurinn bankað upp á hjá lögreglumanninum til að kanna hvort að einhver væri heima en það er vel þekkt að innbrotsþjófar banka upp á eða hringja inn í þau hús sem að þeir hyggjast brjótast inn í til að ganga úr skugga um að enginn sé heima.

Lögreglan á Akureyri hvetur íbúa til að vera vel á varðbergi og tilkynna um grunsamlegar mannaferðir.  

Ekið á barn á reiðhjóli

Lögreglan á Akureyri fékk tilkynningu um bílveltu á Grenivíkurvegi um klukkan hálf þrjú í gærdag. Þar hafði jeppi lent í árekstri við fólksbifreið með þeim afleiðingum að jeppinn valt og fór nokkrar veltur á veginum. Tveir aðilar voru í jeppabifreiðinni og voru þeir fluttir á slysadeild til skoðunar. Aðilarnir í fólksbifreiðinni sluppu með minniháttar meiðsli.  Bifreiðarnar voru fluttar með dráttarbifreið til Akureyrar en þær eru taldar ónýtar.

Tilkynnt var um sjö leytið í gærkvöldi um að ekið hefði  verið á barn á reiðhjóli í Kaupvangsstræti. Lögregla og sjúkralið voru send á staðinn.  Í ljós kom að bifreið hafði verið ekið út af bifreiðastæði við Kaupvangsstræti og í veg fyrir 8 ára dreng á reiðhjóli sem að lenti utan í bifreiðinni. Drengurinn kvartaði undan eymslum í fæti og var hann var færður á slysadeild til skoðunar.

Tilkynnt var um umferðarslys á Drottningarbraut á Akureyri um níu leytið í gærkvöldi en þar var bifreið ekið á ljósastaur.  Ökumaður sem að var einn í bifreiðinni kvartaði undan meiðslum í hálsi og baki.  Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild til skoðunar. Bifreiðin er talin ónýt.

Mikill fjöldi var í miðbæ Akureyrar í nótt og töluverður erill hjá lögreglumönnum en þó gekk allt stór áfallalaust fyrir sig. Einnig var töluvert af fólki saman komið við skemmtanahald á Dalvík og Ólafsfirði í nótt en nokkur ættarmót og samkomur voru haldin þar og fór það að mestu vel fram.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »
Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Honda 100 F
Til sölu HONDA 100 F torfæruhjól 2004 mjög lítið notað fjórgeingisvél. Fyrir ald...
Myndir til sölu
Fallegar leirmyndir til sölu. Seljast báðar á 2.500 kr. Upplýsingar í síma 863-7...
HONDA CR-V VARAHLUTIR 1998-2001+Hyunday Tuson hedd
Á til notaða varahluti í Honda cr-v 1997-2001 td. drif toppgrind,hedd og margt s...
Toyota Yaris árg.2005
Til sölu, ekinn aðeins 56þ. sjálfsk., filmur, spoiler, álfelgur, sumardekk, bíll...
 
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Samkoma sunnudagur
Félagsstarf
Sunnudagur Kl. 11.00 Samkoma o...
Sýslumaðurinn í vík - framhald uppboðs

Uppboð www.naudungarsolur.is Framhald up...