Bleikjunni vel tekið í Bandaríkjunum

Sigurður Rúnar Ragnarsson steikir bleikju og Þormóður Guðbjartsson kynnir osta og skyr í Whole Foods ... stækka

Sigurður Rúnar Ragnarsson steikir bleikju og Þormóður Guðbjartsson kynnir osta og skyr í Whole Foods Market. mynd/Baldvin Jónsson

Morgunblaðið Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is

Sala á ferskri íslenskri bleikju í verslunum Whole Foods Market (WFM) í Bandaríkjunum tólffaldaðist undir lok júnímánaðar. Þá seldust tæp fimm tonn af bleikju á einni viku en venjulega hafa selst um 4-500 kg af bleikju á viku. Bleikjan hefur til þessa aðallega verið seld til veitingahúsa en nú er að hefjast markaðssókn beint til neytenda.

Markaðsátakið var gert í 30 verslunum en stefnt er að því að bjóða bleikjuna til kaups í fleiri verslunum keðjunnar víða um Bandaríkin. WFM rekur nú um 300 verslanir.

Í síðustu viku júnímánaðar var Íslandskynning í nokkrum verslunum WFM á höfuðborgarsvæði Bandaríkjanna, í Washington og nágrenni. Íslenskir matreiðslumenn kynntu þar íslenskar matvörur og tók sala á smjöri, ostum, skyri og íslensku súkkulaði einnig kipp.

Steiktu flök úr íslensku smjöri

Söluaukninguna má þakka mikilli kynningu á íslenskum matvælum sem efnt var til í völdum verslunum keðjunnar í síðustu viku júní í samvinnu við átaksverkefnið Áform. Baldvin Jónsson, framkvæmdastjóri Áforms, sagði að um 20 þúsund viðskiptavinir hafi komið á kynningarnar. Á matarkynningunni steiktu íslenskir matreiðslumeistarar bleikjuflök upp úr íslensku smjöri og bragðbættu með möndlum, dilli og salti. Viðskiptavinir fylgdust með því þegar bleikjuflökunum var brugðið á pönnuna í fáeinar mínútur og fengu síðan að smakka. Leið margra þeirra lá beint að fiskborðinu þar sem bleikjuflökin seldust sem aldrei fyrr. Matreiðslumennirnir kynntu einnig aðrar vörur sem sýndar voru á íslenska sælkerahlaðborðinu og dreift var bæklingum um Ísland og íslensk matvæli sem WFM-verslunarkeðjan hafði útbúið.

Auk þess var íslenskur matur á borðum í árlegri hátíðarveislu samtaka veitingahúsa á Washington-svæðinu og mættu tæplega tvö þúsund stjórnendur og fagfólk í veitingahúsarekstri í veisluna. Í forrétt var reykt íslensk bleikja, skyr og basil-ravioli, Dímon ostur með peru o.fl. Aðalrétturinn var íslenskt lamb og uppistaðan í eftirréttinum var skyr. Siggi Hall var sérstakur ráðgjafi matreiðslumanna Marriott-hótelsins við undirbúning kvöldverðarins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »
Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Peugeot 206 XR Présence árgerð 2007
Til sölu mjög góður og fallegur Peugeot árg. 2007 ekinn 75.000 km. Beinskiptur. ...
Harley Davidsson 2003 árg, 100 ára afmælisútgáfa
Hrikalega flott hjól, ekið 6500 km, mjög vel með farið, fullt af krómi og aukahl...
HONDA CR-V VARAHLUTIR 1998-2001+Hyunday Tuson hedd
Á til notaða varahluti í Honda cr-v 1997-2001 td. drif toppgrind,hedd og margt s...
Kynningartilboð á garðhúsum!!
Kofar og hús eru með kynningartilboð á garhúsum. Kynntu þér málið á www.kofarog...
 
Hjúkrunarfræðingur/ snyrtifræðingur
Hárgreiðsla/Snyrting
Hjúkrunarfræðingur eða snyrtifræðingur ...
Aðstoðarskólastjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Blönduskóli Aðstoðarskólastjóri Staða...
Vantar vélstjóra/vélavörð
Sjávarútvegur
Vantar vélstjóra/vélavörð Vélavörður ósk...
Kennarar og leikskólakennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Hafralækjarskóli og Litlulaugaskóli í Þ...