Áfengi tekið af unglingum í nótt

Lögregla hélt uppi öflugu eftirliti í nótt.
Lögregla hélt uppi öflugu eftirliti í nótt. mbl.is/Júlíus

Tæplega tuttugu unglingar voru færðir í sérstakt athvarf á Menningarnótt í Reykjavík og er það svipaður fjöldi og í fyrra að sögn lögreglu. Hringt var í foreldra þeirra og þeim gert að sækja krakkana en ástand sumra var slæmt sökum ölvunar.

Hópur svæðislögreglumanna  hélt úti eftirliti í gærkvöld og nótt en tilgangur þess var að vinna gegn ólöglegri útivist og áfengisdrykkju. Afskipti voru höfð af fjölmörgum unglingum en þeir sem höfðu ekki aldur til að vera úti við var vísað heim eða færðir í athvarf.

Þá var miklu magni af áfengi hellt niður en lögreglan tók áfengi af u.þ.b. 150 unglingum. Lögreglan segir, að almennt séð hafi ekki verið mikið um brot á lögum um útivistartíma en þeim mun meira um brot á áfengislögum.

Lögreglumenn segjast  nokkuð sáttir með ástandið en ölvun var talsverð og jókst  eftir því sem leið á nóttina.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert