Einn til Gautaborgar

Halldór Guðmundsson
Halldór Guðmundsson mbl.is/Kristinn

Ákveðið hefur verið að Ísland taki þátt í Bókastefnunni í Gautaborg dagana 25. til 28. september en framlagið verður talsvert smærra í sniðum en áður. Stjórn Bókmenntasjóðs ákvað að styrkja verkefnið ekki í ár, eins og forveri hans, Bókmenntakynningasjóður, gerði jafnan.

Í fyrra fóru fjórir höfundar til Gautaborgar að kynna verk sín, en í ár aðeins einn, það er Halldór Guðmundsson með ævisögu sína um Halldór Laxness í sænskri þýðingu.

Aukið þekkingu og útgáfu

Anna Einarsdóttir hefur haft umsjón með þátttöku Íslands í bókastefnunni frá upphafi. „Ég hef farið með bækur fyrir bókaforlögin og það er eins í ár. Það eru bæði þýðingar og athyglisverðar, nýjar, íslenskar bækur, það eru svo margir Íslendingar búsettir þarna.“

Anna segir bókastefnuna hafa mikla þýðingu fyrir íslenskar bækur á Norðurlöndum. „Það hafa aukist ótrúlega mikið þýðingar á íslenskum bókum á norræn mál og það hafa margir íslenskir höfundar komið fram þarna og eftir það fengið gefnar út eftir sig bækur á sænsku og fleiri Norðurlandamálum. Þetta hefur bæði aukið þekkingu og útgáfu á íslenskum bókmenntum á Norðurlöndum.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka