24 óku of hratt í Skógarseli

Hraðabrot 24 ökumanna voru fest á filmu í Skógarseli í Breiðholti í dag, samkvæmt fréttavef lögreglunnar. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið um Skógarsel í norðurátt, að Þverárseli. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 180 ökutæki þessa leið og því óku um 13% ökumann of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 61 km/klst, en þarna er 50 km. hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 69 km. hraða

Skógarsel er í nágrenni við Ölduselsskóla í Breiðholti og er vöktun lögreglunnar þar liður í eftirliti með hraðakstri við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka