Bæjarráð Kópavogs mótmælir gjaldskrárhækkun OR

Horft yfir Kópavog.
Horft yfir Kópavog. mbl.is/Árni Sæberg

Bæjarráð Kópavogs mótmælir harðlega ákvörðun stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur um 10% hækkun á heitavatnsgjaldi. Hækkunin er sem olía á verðbólgubál og kemur því á versta tíma. Þetta kemur fram í ályktunartillögu sem bæjarráð Kópavogs samþykkti einróma í dag.

Fram kemur í tillögunni að það skjóti „skökku við að hækkunin skuli rökstudd með vísan til fjárfestinga Orkuveitunnar en það geti vart hafa verið ætlunin að þær myndu leiða til slíkra verðhækkana hjá almenningi. Bæjarráð Kópavogs skorar á eigendur Orkuveitunnar, þar sem Reykjavíkurborg fer með langstærstan eignarhlut, að endurskoða ákvörðunina,“ segir í ályktuninni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert