Hraðakstur á Reykjanesbraut

Sex ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni í gærkvöldi og í nótt.  Sá er hraðast ók mældist á 128 km/klst. þar sem hámarkshraðinn er 90 km/klst.  Þá voru tveir ökumenn teknir grunaðir um ölvun við akstur í Reykjanesbæ í nótt, samkvæmt frétt frá lögreglunni á Suðurnesjum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert