Alvarlega slasaður eftir bílslys

Landspítalinn
Landspítalinn Þorvaldur Örn Kristmundsson

Einn þeirra fimm sem lentu í bílslysi á Hringbraut í nótt liggur alvarlega slasaður á gjörgæslu Landspítalans. Er honum haldið sofandi í öndunarvél.

Slysið varð með þeim hætti að um kl. 3:30 í nótt var bílnum ekið í gegnum stálgirðingu sem skilur að umferðina um Hringbraut í gagnstæðar áttir. Beita þurfti klippum til þess að ná einum farþega úr bifreiðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert