Reiknað með um 60 milljarða halla
Í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sem kynnt verður í dag er reiknað með tæplega 60 milljarða króna halla á rekstri ríkissjóðs samkvæmt heimildum 24 stunda.
Fyrri spár höfðu gert ráð fyrir að tekjuafkoma ríkissjóðs yrði neikvæð um 20 milljarða króna á árinu 2009 en það breyttist á síðustu vikum.
Gerð frumvarpsins var lokið á ríkisstjórnarfundi fyrir helgi og í kjölfarið sent til prentunar. Atburðir síðustu daga hafa því ekki bein áhrif á frumvarpið en heimildir 24 stunda herma að líklega verði tekið tillit til breyttra forsendna í meðförum þingsins.
Mikill tekjuafgangur undanfarin ár
Fjárlagafrumvarpið verður kynnt í Hafnarborg í Hafnarfirði í dag klukkan ellefu og fyrsta umræða um það fer fram í þinginu á föstudag. Fjárlög voru síðast afgreidd með halla hérlendis árið 2001.
Í fjárlögum ársins 2008 var gert ráð fyrir tæplega 40 milljarða króna tekjuafgangi af rekstri ríkissjóðs.
Rekstrarreikningur fyrir árið 2007 sýndi að tekjuafgangur ríkissjóðs var um 89 milljarðar króna, árið þar áður tæplega 82 milljarðar króna og 113 milljarðar króna árið 2005. Ríkissjóður var í árslok 2007 með jákvætt fé upp á tæpa tíu milljarða króna. Það var í fyrsta sinn sem slíkt gerðist. Góð afkoma ríkissjóðs á árinu 2007 var meðal annars notuð til að styrkja eiginfjárstöðu Seðlabanka Íslands um 44 milljarða króna.
Bloggað um fréttina
-
Guðbjörn Jónsson Er nú ekki hægt að selja fleiri eignir ??????? -
Bergur Thorberg Halli litli fær 60 milljarða -
Jón Þór Ólafsson Húsnæðisbólan gabbaði líka ríkið til að eyða um efni fram. -
Hólmdís Hjartardóttir Hver þeirra verður það?
Innlent »
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 1. október 2008, Innlent Þrír milljarðar í tekjuafgang
- Mánudagur, 17. mars 2008, Innlent 9,2% af landsframleiðslu til heilbrigðismála
- Föstudagur, 9. október 2009, Innlent Langmesti samdráttur ríkistekna
- Fimmtudagur, 1. október 2009, Innlent Reikna með 87 milljarða halla
- Fimmtudagur, 18. september 2008, Innlent Mikill afgangur af opinberum rekstri í fyrra
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“




































