Umbúðirnar skapa matinn

Morgunblaðið

Dr. Ingibjörg Gunnarsdóttir dósent í næringarfræði við matvæla- og
næringarfræðideild Háskóla Íslands stendur fyrir málstofu sem ber yfirskriftina Bragðast hollur matur betur í Latabæjarumbúðum?

Í tilkynningu frá Dr. Ingibjörgu segir: „Ýmsir matvælaframleiðendur hafa nýtt sér vörumerki til þess að markaðssetja vörur sem oftar en ekki eiga það sameiginlegt að innihalda annað hvort of mikið af viðbættum sykri eða mettaðri fitu, eða vera snauðar af næringarefnum. Offita hefur aukist gríðarlega á síðastliðnum áratugum. Talið er að markaðssetning skyndibita og skyldra vörutegunda ætluðum börnum eigi þar hlut að máli.

 Markmið verkefnisins var að kanna hvort börnum á leikskólaaldri þætti matur sem borinn er fram í Latabæjarumbúðum betri heldur en matur sem borinn er fram í hefðbundnum umbúðum.

Tilgangurinn var að kanna hversu langt raunhæft er að ganga varðandi hollustukröfur matvöru sem markaðssett er með börn í huga.

Börnin voru beðin um að meta fimm pör af samskonar mat og drykk, borið fram annars vegar í Latabæjarumbúðum og hins vegar í hefðbundnum umbúðum. Alls luku 66 börn tilrauninni.

Sýnin voru borin á borð og eftirfarandi spurning borin upp: „Getur þú sagt mér hvort þér finnist „maturinn“ (þ.e. vatnið, brauði o.s.frv.) eins á bragðið eða hvort þér þyki annað betra heldur en hitt?“

Í 27–42% tilfella töldu börnin að „Latabæjar-maturinn“ væri betri á bragðið. Niðurstöður benda til þess að ungum börnum þyki hollur matur bragðast betur í Latabæjarumbúðum heldur en í hefðbundnum umbúðum."

Málstofan verður haldin næstkomandi mánudag, kl. 12:10-12:50
í stofu C-201 á 2. hæð í Eirbergi, Eiríksgötu 34. Málstofan er öllum opin.


Umbúðirnar skipta máli að mati barnanna sem þátt tóku bragðaðist …
Umbúðirnar skipta máli að mati barnanna sem þátt tóku bragðaðist „Latabæjarmatur" betur. mbl.is/ÞÖK
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert