Innbrot á Reyðarfirði

Brotist var inn á tveimur stöðum á Reyðarfirði í nótt …
Brotist var inn á tveimur stöðum á Reyðarfirði í nótt og skemmdir unnar. mbl.is/Július

Brotist var inn í söluskála Shell á Reyðarfirði í nótt. Að sögn lögreglu var talsvert tjón unnið, sjóð- og lottóvélar skemmdar, rúður brotnar og myndavélakerfi tekið í sundur. Að sögn lögreglu lítur út fyrir töluvert tjón en ekki mun miklu hafa verið stolið.

Einnig var brotist inn Fosshótel á Reyðarfirði og sjóðvél eyðilögð. Lögreglan vinnur nú að rannsókn málanna og útilokar ekki að þar séu tengsl á milli.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert