Benz brann til kaldra kola á bifreiðastæði

Glænýr Mercedes Benz brann til kaldra kola á bifreiðastæði Öskju við Krókháls 11 í nótt. Önnur bifreið sem stóð við hlið hennar sviðnaði einnig að sögn lögreglunnar.

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna brunans kl 2:35 og slökkti eldinn. Að sögn lögreglu var ekki hætta á að nálæg mannvirki yrðu eldinum að bráð. Málið er í rannsókn og ekki er útilokað að kveikt hafi verið í bifreiðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert