Skjárinn segir öllum upp

Skjárinn hefur tilkynnt öllum starfsmönnum sínum að þeim verði sagt upp frá og með 1. nóvember. Segir félagið að þetta sé gert í ljósi mikils samdráttar á auglýsingamarkaði, ójafnrar samkeppni frá RÚV og óvissu um innkaupsverð á sjónvarpsefni frá útlöndum.

Í tilkynningu frá félaginu segir, að vonandi þurfi uppsagnir starfsmanna ekki að taka gildi en uppsagnarfresturinn sé í flestum tilvikum þrír mánuðir. Til þess að starfsemi SkjásEins geti haldið áfram þurfi tvennt að gerast: Annars vegar þurfi stjórnvöld að taka ákvörðun um að hér ríki eðlilegt samkeppnisumhverfi, sambærilegt við það sem gerist á öðrum Norðurlöndum. Hins vegar þurfi SkjárEinn að endursemja við erlenda birgja þegar gjaldeyrisviðskipti komast í lag.

Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Skjásins segir í tilkynningu að stjórnendur og starfsmenn muni taka höndum saman á næstu vikum til þess að starfsemin geti haldið áfram, áhorfendum og auglýsendum til heilla.

Skjárinn sér um rekstur auglýsingasjónvarpsstöðvarinnar SkjásEins. Skjárinn sér einnig um rekstur SkjásBíós, sem er vídeóleiga heima í stofu og SkjásHeims sem veitir áskrift að yfir 60 erlendum sjónvarpsstöðvum. Ef uppsagnirnar taka gildi munu breytingarnar hafa áhrif á rekstur SkjásEins en viðskiptavinir munu áfram hafa aðgang að þjónustu SkjásBíós og SkjásHeims.

 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert