12 þúsund hafa skrifað undir áskorun

Starfsmenn Skjásins settu í gærkvöldi upp áskorun á netinu þar sem áhorfendum Skjás Eins gefst kostur á að styðja við kröfu starfsmanna um að stjórnvöld takmarki umsvif Ríkisútvarpsins á auglýsinga- og efniskaupamarkaði.

Í tilkynningu kemur fram, að um klukkan 14:30 í dag höfðu um 12.000 einstaklingar skráð sig á síðuna en markmiðið sé að ná 20.000 skráningum.  

Þá hefur verið stofnuð stuðningssíða á samfélagsvefnum Facebook.

Áskorun á netinu

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert