Óljóst með heimssýninguna

Frá Shanghai
Frá Shanghai Reuters

Ekki liggur ljóst fyrir hvort Íslendingar muni taka þátt í heimssýningunni EXPO 2010 sem haldin verður í Shanghai  í Kína frá maí til október 2010. Í síðasta mánuði var greint frá því að Íslendingar myndu taka þátt og að kostnaðurinn næmi um 620 milljónum króna. Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu eru þessi mál í skoðun og hefur engin ákvörðun verið tekin hvort þátttakan verður blásin af eður ei.

Þema sýningarinnar er borgarsamfélagið, undir einkunnarorðunum „Betri borg, betra líf". Sagði í tilkynningu frá stjórnvöldum þann 24. september sl. að markmiðið með þátttöku Íslands væri að vekja athygli á íslenskri orku og orkunýtingu, mannauði og menningu. Jafnhliða yrði leitast við að skapa íslenskum fyrirtækjum viðskiptatækifæri, samkvæmt tilkynningu.

Heimssýningin er haldin á fimm ára fresti með þátttöku flestra ríkja heims og að þessu sinni er gert ráð fyrir að um 400.000 manns sæki sýninguna daglega.  Heimssýningin var síðast haldin í Aichi í Japan árið 2005.  Þar voru Norðurlöndin með sameiginlega sýningu.  Að þessu sinni munu Norðurlöndin eiga náið samstarf en hafa þó hvert sinn skála sem standa munu hlið við hlið á sýningarsvæðinu.

Ákveðið hafði verið að leigja 1.000 m² skála af skipuleggjendum, en þess má geta að sýningarrými hinna Norðurlandanna eru á bilinu 3.000 til 6.000 m².  

Kostnaður ríkisins 450 milljónir króna

Heildarkostnaður er áætlaður um 620 m.kr. og er gert ráð fyrir að hlutdeild ríkisins fari ekki yfir 450 m.kr.  Samningar við sex fyrirtæki liggja fyrir og vonast er til þess að fleiri aðilar komi að fjármögnun verkefnisins.  

Gert er ráð fyrir að íslenskir listamenn taki þátt í verkefninu með margvíslegum hætti, auk þess sem þátttakan í heimssýningunni felur í sér gerð margvíslegs kynningarefnis um Ísland sem nýtt verður áfram að sýningu lokinni.  
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka