Kristín GK verður Kristín ÞH

Kristín ÞH-157
Kristín ÞH-157 mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Línuskipinu Kristínu ÞH-157 var fagnað þegar það lagðist að bryggju í nýrri heimahöfn á Húsavík í morgun. Þetta er fyrsta koma skipsins síðan útgerð þess, Vísir hf., færði heimahöfn Kristínar frá Grindavík til Húsavíkur.

Bergur Elías Ágústsson sveitarstjóri Norðurþings var fyrstur um borð í morgun og færði Njáli Kolbeinssyni skipstjóra og áhöfn hans tertu í tilefni komunnar.

Kristín ÞH var með 75-80 tonna afla sem var nánast öllum ekið til vinnslu í öðrum starfsstöðum Vísis hf. en á Húsavík. Ástæða þess er að á Húsavík er einungis unnin ýsa og ýsuaflinn hjá Kristínu í þessari veiðiferð var einungis tvö til þrjú kör.

Bergur Elías Ágústsson sveitarstjóri Norðurþings færir Njáli Kolbeinssyni skipstjóra tertu …
Bergur Elías Ágústsson sveitarstjóri Norðurþings færir Njáli Kolbeinssyni skipstjóra tertu í tilefni dagsins. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert