Skoða meintar milljarðafærslur
Skilanefnd Kaupþings segir rannsókn á meintum millifærslum milljarða króna úr sjóðum Kaupþings banka hf. yfir til erlendra banka fyrir þjóðnýtingu bankans í fullum gangi. Skilanefnd hefur ráðið óháðan sérfræðing til verksins og hefur hann haft óheftan og milliliðalausan aðgang að öllum gögnum bankans í tengslum við athugunina. Nefndin segir ekkert liggja fyrir um að fjármunum hafi verið með ólögmætum hætti ráðstafað úr sjóðum bankans eða að peningar hafi verið færðir til landa þar sem erfitt er að komast að því hver reikningseigandinn er.
Skilanefnd Kaupþings banka hf. sendi frá sér eftirfarandi yfirlýsingu vegna frétta í fjölmiðlum í gær um að milljarðar hafi verið millifærðir úr sjóðum Kaupþings banka hf. fyrir þjóðnýtingu.
„Á grundvelli laga nr. 125/2008, um heimild til fjárveitingar úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði o.fl., beindi Fjármálaeftirlitið þeim tilmælum til skilanefndar Kaupþing banka hf. að skilanefndin réði óháðan sérfræðing til að kanna hvort vikið hafi verið frá innri reglum bankans, lögum og reglum um starfsemi fjármálafyrirtækja, lögum um verðbréfaviðskipti, almennum hegningarlögum svo og öðrum réttarheimildum sem varðað geti háttsemi einstaklinga og lögaðila sem athugunin beinist að.
Í samræmi við tilmæli Fjármálaeftirlitsins réði skilanefnd þá þegar óháðan sérfræðing til verksins og hefur hann haft óheftan og milliliðalausan aðgang að öllum gögnum bankans í tengslum við athugunina.
Er vinna þessi í fullum gangi en um gríðarlegt magn ganga, upplýsinga og færslna er að ræða á því tímabili sem er til skoðunar. Á þessu stigi málsins er ekki unnt að greina frá niðurstöðu framangreindrar athugunar, enda er henni ekki lokið eins og áður segir.
Í tilefni af nefndum fréttaflutningi vill skilanefnd þó taka fram að ekkert liggur fyrir um að fjármunum hafi verið með ólögmætum hætti ráðstafað úr sjóðum bankans eða að peningar hafi verið færðir til landa þar sem erfitt er að komast að því hver reikningseigandinn er, eins og gefið var til kynna í fréttum ofangreindra fjölmiðla.
Skilanefndin hyggst sjá til þess að athugun hins óháða sérfræðings verði lokið innan eðlilegs tíma eins og ráð var fyrir gert og í framhaldi af því kynna niðurstöður þeirrar athugunar fyrir Fjármálaeftirlitinu.
Fyrir hönd skilanefndar Kaupþings banka hf.,
Steinar Þór Guðgeirsson, formaður.“
Bloggað um fréttina
-
Friðrik Þór Guðmundsson Sækjið þetta illa fengna fé siðlausu svindlaranna -
Ridar T. Falls 6 orða saga #440 -
Vilborg Traustadóttir Ríkisstjórnin að vígbúast. Burt með spillingarliðið -
Gestur Guðjónsson It's the muppit show -
-
Birna Dis Vilbertsdóttir Hvaða óháði einstaklingur er þetta? -
Jónas Yngvi Ásgrímsson Eru þetta allt saman glæpamenn? -
Benedikt Bjarnason Þjóðin líður -
Axel Jóhann Hallgrímsson Fáheyrð vinnubrögð -
Vésteinn Valgarðsson Kemur ekki á óvart -
S i g u r ð u r Sigurðarson Plís góði guð, gefðu að glæpur hafi verið framinn.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 9. desember 2008, Innlent Björgvin vissi ekki um KPMG fyrr en í gær
- Þriðjudagur, 9. desember 2008, Innlent KPMG vill rannsókn á störfum fyrir Glitni
- Þriðjudagur, 1. desember 2009, Innlent Blaðamannafundur um Arion
- Mánudagur, 30. mars 2009, Innlent Skilanefnd fyrir Sparisjóðabankann
- Miðvikudagur, 21. október 2009, Innlent Erlendir bankar ósáttir við endurreisn bankakerfisins
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































