Bátur skemmdist þegar kerra gaf sig

Bátur skemmdist talsvert þegar kerra, sem bifreið var með í eftirdragi, gaf sig á Snæfellsnesvegi við Borg á Mýrum á níunda tímanum í kvöld. Að sögn lögreglunnar á Borgarnesi valt báturinn, sem vegur um þrjú tonn, út af veginum. Engan sakaði og þá urðu engar tafir á umferð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert