Reykspóluðu við Alþingishúsið

Fréttir berast af því að rétt í þessu hafi 20 til 30 vélhjólamenn reykspólað fyrir framan Alþingishúsið. Að sögn blaðamanns Morgunblaðsins á staðnum var reykurinn þvílíkur að varla sást í Alþingishúsið fyrir reyk og liggur gúmmíbræla yfir Austurvelli.

Í yfirlýsingu sem barst í dag frá Ferðaklúbbnum 4 x 4 segir að stjórn hans vilji koma því á framfæri af gefnu tilefni að þeir félagsmenn sem taka þátt í mótmælum Bifhjólasamtakanna Rudda séu þar á eigin forsendum en ekki í nafni Ferðaklúbbsins 4x4. Undir þetta skrifar formaður 4 x 4 Ágúst Birgisson.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert