Gjaldþrotabeiðni Malarvinnslunnar samþykkt

Gjaldþrotabeiðni Malarvinnslunnar á Egilsstöðum var samþykkt í Héraðsdómi Austurlands í morgun, samkvæmt upplýsingum frá Gunnlaugi Aðalbjarnarsyni, stjórnarformanni Malarvinnslunnar. Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður, hefur verið skipaður skiptastjóri þrotabúsins og hefur hann þegar hafið störf, segir Gunnlaugur í samtali við mbl.is.

Að sögn Gunnlaugs er engin starfsemi lengur hjá Malarvinnslunni en hjá fyrirtækinu störfuðu um 60 manns en 40 manns var sagt upp í síðasta mánuði. Er nú unnið að því að segja þeim upp störfum.  Heildarskuldir Malarvinnslunnar nema á bilinu 2- 2,5 milljörðum króna.

Að sögn Gunnlaugs hafa borist tilboð í einstakar einingar Malarvinnslunnar og er það í höndum skiptastjóra að fara með þau mál. Sveinn Andri mun fara yfir alla samninga félagsins og taka afstöðu til þeirra tilboða sem borist hafa í félagið.

Malarvinnslan hf. var stofnuð 1980. Tilgangurinn var vinnsla steinefna fyrir Vegagerð ríkisins og steypuframleiðendur. Saga félagsins byggir þó á enn eldri grunni því stofnendur Malarvinnslunnar hf. komu úr steinefnageiranum þ.e.a.s. hellu og rörasteypu og olíumalarframleiðslu. Í apríl 2000 runnu saman Malarvinnslan hf. og Brúnás Egilsstöðum ehf.  Brúnás á sér langa sögu sem byggingarfyrirtæki eða frá 1958. Þaðan kom mikil þekking og reynsla í framleiðslu forsteyptra einingahúsa ásamt byggingu bæði íbúðahúsa og atvinnuhúsnæðis. Þessir tveir megin þættir mynda byggingardeildina sem til varð við samrunann. Tekið skal fram að Brúnás innréttingar sem framleiddar eru af Miðási hf. tengist ekki Malarvinnslunni á nokkurn hátt.

Malarvinnslan er að fullu í eigu Kaupfélags Héraðsbúa svf. en félagið keypti allt hlutafé í Malarvinnslunni hf. í september í fyrra.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert