Háskólinn á Akureyri ekki hafður með

Skapti Hallgrímsson

Bæjarráð Akureyrar furðar sig á því að  Háskólinn á Akureyri hafi ekki átt aðkomu að nýstofnuðum  samstarfsvettvangi um Lýðheilsurannsóknir. Tvær helstu lýðheilsurannsóknir á Íslandi hafa verið unnar á vegum Háskólans á Akureyri og  þar er öflug heilbrigðisdeild sem sinnir jafnframt rannsóknum.
Þegar ákvörðun lá fyrir að Lýðheilsustöð yrði ekki staðsett á Akureyri var um það rætt að rannsóknastarf stofnunarinnar kynni að verða staðsett hér.  Þegar til kom var rannsóknasvið Lýðheilsustöðvar einnig sett á stofn innan veggja stofnunarinnar í Reykjavík. Þetta kemur fram í ályktun bæjarráðs í dag.

Bæjarráð mótmælir harðlega þessum vinnubrögðum og beinir því til þeirra er málið varðar að Háskólinn á Akureyri verði þátttakandi í samstarfsvettvangi um lýðheilsurannsóknir en fyrir tveimur dögum var kynnt viljayfirlýsing milli heilbrigðisráðuneytis, Lýðheilsustöðvar, Háskólans í Reykjavík og Háskóla Íslands varðandi samstarfsvettvang um lýðheilsurannsóknir. 

Stefnt að hagræðingu í rekstri Akureyrarbæjar

Á fundi bæjarráðs var samþykkt að fela fastanefndum að leggja fram tillögur um hagræðingu í rekstri en fyrirsjáanlegt er að tekjur Akureyrarbæjar munu lækka allnokkuð á næsta ári vegna efnahagsaðstæðna í samfélaginu.  Við þessu þarf að bregðast m.a. með hagræðingu í rekstri.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert