Nýtt nafn og stjórn hjá 365

Hluthafafundur 365 hf. verður haldinn í dag. Ari Edwald, forstjóri félagsins, sagði í gærkvöldi að kosin yrði ný stjórn en vildi ekki gefa upp hverjir gæfu kost á sér til stjórnarsetu. „Það kemur í ljós á fundinum, það er enginn fyrirvari á því,“ sagði Ari.

Á fundinum verður einnig kosið um nýtt nafn á fyrirtækinu. Starfsemi 365 hf. er rekin af tveimur félögum, fjölmiðlahlutinn af 365 miðlum og afþreyingarhlutinn af Senu. Eins og kunnugt er keypti eignarhaldsfélag Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Ný sýn ehf., fjölmiðlahluta 365 á dögunum fyrir 6,4 milljarða króna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert