Efast um stjórnarsamstarfið

Frá Alþingi Íslendinga. Mörður telur Sjálfstæðisflokkinn ekki stjórntækan.
Frá Alþingi Íslendinga. Mörður telur Sjálfstæðisflokkinn ekki stjórntækan. mbl.is/Kristinn

Mörður Árnason, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, lýsir yfir efasemdum um stjórnarsamstarfið. Mörður segir þessa skoðun útbreidda innan flokksins, enda sé hugmyndafræði Sjálfstæðisflokksins gjaldþrota.

Mörður viðrar þessa skoðun sína í pistli á vefsíðunni smugan.is.

Hann skýtur föstum skotum að forystumönnum Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs.

„Þess vegna veit maður ekki hvað VG er eiginlega að hugsa þessa dagana. Í staðinn fyrir að snúa sér í átt til Samfylkingarinnar - og búast við hinu sama af okkur - hafa Steingrímur og félagar í fararbroddi vinstrigrænna dundað á hverjum degi við að smíða sér sem hvassasta sérstöðu, sem að lokum tognar svo á að hún tengist helst hægriöfgaöflunum heimastjórnarmegin í Sjálfstæðisflokki.“

Vill þingmaðurinn fyrrverandi einnig meina að frjálshyggjuhugmyndir Sjálfstæðisflokksins hafi beðið skipbrot.

„Það er kunnara en frá þurfi að segja að innan Samfylkingarinnar eru uppi miklar efasemdir um stjórnarsamstarfið við Sjálfstæðisflokkinn. Í fyrsta lagi vegna þess að  hugmyndafræði þess flokks undanfarin ár og áratugi er gjaldþrota - hinn nýi laissez-faire-kapítalismi Hannesar Hólmsteins og Eimreiðarhópsins er hér með afsannaður á Íslandi og um heiminn,“ segir Mörður og heldur áfram.

„Í öðru lagi vegna þess að samstarf við Sjálfstæðisflokkinn virðist ekki geta farið fram öðruvísi en í hjúpi leyndar - þar sem undansláttur, feluleikir og spunatilraunir eru orðin markmið í sjálfu sér langt umfram allan eðlilegan trúnað og varúð. Leyndarhyggjan er hluti af sjálfum kúltúr Sjálfstæðisflokksins, og á sér rætur bæði í embættisaðal og forstjóraskrifstofur.

Í þriðja lagi vegna þess að flokknum er illa treystandi þegar gefur á: Forystan hefur verið í fumi og fáti frá fyrsta degi, og ekki bætir úr að aftur og aftur birtist á framsviðinu uppvakningur sem telur sig enn hafa völdin í konungsríkinu - og virðist hafa í fullu tré við þá hvolpa tvo sem þar eiga að heita við stjórnvöl. Menn hafa í stuttu máli efasemdir um að Sjálfstæðisflokkurinn sé stjórntækur - eða réttara sagt stjórnhæfur - eftir viðburði síðustu vikna.“

Mörður segir atburðarás síðustu vikna hafa tekið umboðið af ríkisstjórninni.

„Almenningur hefur misst á henni nauðsynlegt traust - og raunar á stjórnvöldum samanlögðum og stjórnarandstöðunni líka. Yfir stendur stjórnmálakreppa, sem hvenær sem er getur breyst í stjórnarkreppu. Sú staða er uppi þangað til nýtt umboð er fyrir hendi - hjá nýrri ríkisstjórn hverjir sem hana mynda. Slíkt umboð getur fengist með kosningum, sem við teljum mörg að  hljóti að vera á dagskrá á næsta ári, eða með sannfærandi stefnuáætlun til skemmri tíma þar sem einnig væri samið um kjördag.“

Nálgast má allan pistil Marðar hér.

Mörður Árnason, fyrrverandi þingamður Samfylkingarinnar.
Mörður Árnason, fyrrverandi þingamður Samfylkingarinnar.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert