Lögmannafélagið gagnrýnir vinnubrögð Alþingis

Lögmannafélags Íslands gagnrýnir vinnubrögð Alþingis við lagasetningu að undanförnu og telur að verði ekki vandað til verka og leitað álits sérfræðinga, gæti réttaröryggi borgaranna verið ógnað.

Í bréfi sem stjórn Lögmannafélags Ísland sendi Sturlu Böðvarssyni, forseta Alþingis, segir að á undanförnum vikum hafi nokkuð borið á því að lagafrumvörp hafi verið afgreidd sem lög frá Alþingi í miklum flýti og jafnvel án þess að leitað hafi verið eftir umsögn eða áliti sérfræðinga á þeim, svo sem jafnan er gert.

„Stjórn Lögmannafélags Íslands gerir sér grein fyrir því að Alþingi hefur, vegna hinna umfangsmiklu erfiðleika sem upp hafa komið í kjölfar falls íslensku bankanna og tengdra atburða, þurft á stundum að bregðast við með skjótum hætti. Stjórn félagsins leyfir sér hins vegar að benda á að nauðsyn þess að vanda vel til við smíði og málsmeðferðar lagafrumvarpa fyrir þinginu er sjaldnast meiri en einmitt undir slíkum kringumstæðum,“ segir í bréfinu.

Þá segir að það sé sammerkt með þeim frumvörpum sem lögð hafa verið fram á Alþingi á síðustu vikum, að þau snerti mörg hver mikilsverð réttindi manna, svo sem friðhelgi einkalífs, málsmeðferð fyrir rannsóknaraðilum og dómstólum, meðferð trúnaðarupplýsinga o.fl., þ.e. réttindi sem njóta sérstakrar verndar samkvæmt stjórnarskrá og Mannréttindasáttmála Evrópu. Afar brýnt sé, þegar svo mikilsverð réttindi eru til meðferðar í þinginu, að jafnan sé leitað álits færustu sérfræðinga á viðkomandi sviði, bæði fyrir og ekki síður á meðan frumvörp eru til meðferðar þingsins. Það sé grundvallaratriði að ný löggjöf sé þannig úr garði gerð að engin hætta sé á að hún brjóti gegn stjórnarskrá lýðveldisins og/eða öðrum viðurkenndum grundvallarreglum og/eða alþjóðasáttmálum sem íslensk stjórnvöld hafa undirgengist.

„Slíkt er til þess fallið að auka á ósætti og ágreining í samfélaginu og þá jafnframt álag á réttarkerfi landsins. Sú þróun sem hér er vakin athygli á gæti ógnað réttaröryggi borgaranna og vegið að þeim gildum sem almennt eru viðurkennd í lýðræðissamfélögum. Með þessu gæti ímynd Íslands sem lýðræðisríkis ekki aðeins beðið hnekki á alþjóðavettvangi, heldur einnig gert þá slæmu stöðu sem nú er uppi, enn verri. Sú staða gæti á örskotsstundu eyðilagt margt það sem áunnist hefur á undanförnum áratugum, nokkuð sem erfitt gæti verið að vinna til baka nema á löngum tíma,“ segir að lokum í bréfi Lögmannafélags Íslands til forseta Alþingis.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert