Jólagjöfunum líka stolið

Nokkuð er um innbrot í bíla á höfuðborgarsvæðinu og segir lögregla þjófum ekkert heilagt. Þeir steli jafnvel jólagjöfum ef því er að skipta. lögregla brýnir fyrir eigendum eða umráðamönnum ökutækja að hafa þetta hugfast og muna að skilja ekki verðmæti eftir í bílum.

Sé það óumflýjanlegt segir lögregla mikilvægt að slíkir hlutir séu ekki í augsýn. Sömuleiðis er rétt að benda á mikilvægi þess að skilja bíla frekar eftir á upplýstum bílastæðum, ef þess er nokkur kostur. Þjófum finnst nefnilega fátt betra en að athafna sig í myrkrinu þar sem ekki sést til þeirra.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert