Yfir 9 þúsund á atvinnuleysisskrá

Enn fjölgar á atvinnuleysisskrá og samkvæmt vef Vinnumálastofnunar eru nú 9.171 án atvinnu á landinu öllu. Þar af eru 5.742 karlar og 3.429 konur. Á höfuðborgarsvæðinu eru 5.746 án atvinnu. Í nóvember mældist atvinnuleysi 3,3% eða að meðaltali 5.445 manns. Þeim hefur því fjölgað um 3.726 í desember.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert